Grillþjónusta Greifans nýtur mikilla vinsælda, en hún gefur möguleika á að halda veislur næstum hvar sem er; í heimahúsum, hjá fyrirtækjum, á ættarmótum og jafnvel upp á jöklum ef þess er óskað. Hægt er að setja upp slíkar veislur í tengslum við ráðstefnur, fundi, hvataferðir eða nánast af hvaða tilefni sem er.
Boðið er upp á þrenns konar seðla sem má sjá hér til hliðar. Þú getur líka sett
saman saman eigin grillseðil með því að velja úr þeim grillréttum sem við höfum upp á að bjóða.
Einnig bjóðum við upp á partýgrill-pakka. Sérstaklega einfallt og þægilegt.
Tilvalið fyrir skólahópa.
Er grillmeistari í hópnum?
Það leynist oft einn sérfræðingur í hverjum hóp sem kann vel til verka við grillið. Við getum tekið allt til í veisluna en
sérfræðingurinn sér um matseldina. Ódýrari lausn sem vert er að skoða, leitaðu tilboða hjá okkur (lágmarkfjöldi 10
m).
Nánari Upplýsingar:
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá með því að hafa samband við veitingastjóra Greifans í síma 460-1600.





