Fullorðnir gera sér oft dagamun, þegar merkisdaga eins og afmæli ber upp hjá þeim, og fara út að borða. En börnin eiga líka
afmæli og hjá börnum er hvert afmæli stórafmæli. Á Veitingahúsinu Greifianum er hægt að halda afmælisveislur fyrir börn.
Algengt er að afmælin séu haldin á svokölluðum „litla Greifa" sem er lítill hliðarsalur á Greifanum. Afmælisbarnið fær
afmælisís frá Greifanum.
Pizzuhlaðborð og franskar kartöflur eru vinsælast í barnaafmælum en í raun er hægt að fá allan þann mat sem er á matseðlum
Greifans. Þeir sem vilja mega koma með afmælisköku með sér. Verðið er háð listaverði í matseðli. Það fer
því eftir því hvað er pantað, hve mikið slík afmæli kosta.




