Greifinn

Greifinn veitingahús

Netpöntun - Spurt og svarað

Get ég fengið sent heim ?
Já, lágmarksupphæð er kr 1800 og þú þarf að hafa GSM síma við höndina.

Hvað er innifalið í pizzatilboði?
Margarita (pizzabotn, sósa og ostur) og þrjú álegg að eigin vali.

Get ég pantað Pizzu nautabanans/Búkollu á netinu?
Þú byrjar á því að velja stærðina og velur svo "sérréttaseðlinum" með einu smelli þína uppáhalds pizzu af sérréttaseðlinum okkar.

Get ég pantað fleiri en þrjú álegg með hverri pizzu ?
Já en það greiðist fyrir hvert álegg umfram þessi þrjú sem fylgja tilboði.

Get ég pantað eitthvað annað en pizzu ?
Já en það þarf alltaf að panta a.m.k eina pizzu á netinu. Allt annað meðlæti er á sama verði á netinu og þegar pöntun er hringd inn.

Get ég pantað þunnbotna pizzu ?
Já með því að smella á "viðbótar boxið " í pöntun opnast gluggi þar sem hægt er að merkja við séróskir um botn, sósu og ost.

Get ég pantað kjúklingasalat ?
Já en á netinu þarf alltaf að panta a.m.k eina pizzu. Kjúklingasalat er á sama verði á netinu og þegar hringt er og pantað.

Hvernig kem ég skilaboðum á framfæri ?
Í lokaskrefinu áður en þú staðfestir getur þú komið skilaboðum til okkar í „Athugasemd með pöntun“.

Getur tíminn breyst á meðan ég er að panta ?
Það er möguleiki að biðtími breytist á meðan þú ert að panta. Biðtíminn sést allan tímann á meðan þú ert að ganga frá þinni pöntun hægra meginn efst í glugga. Biðtími getur bæði hækkað og lækkað.

Get ég fengið sent frítt SMS þegar pizzan fer í ofninn ?
Já í lokaskrefinu er þér boðið að fá SMS. Þú hakar í reitinn og skráir GSM símann sem þú villt fá SMS-ið í. Ekki er hægt að senda SMS í heimasíma. Þegar þú færð SMS frá okkur þá eru 10 mínútur í það að pöntun sé tilbúin til afgreiðslu. Berist SMS ekki í símann þinn á tilætluðum tíma er rétt að hringja til okkar, símanúmer gæti hafa verið vitlaust skráð eða SMS skeyti ekki borist vegna „tæknilegra mistaka“

Get ég greitt með korti í gegnum netið?
Nei.

Hvað geri ég ef ég lendi í vandræðum með netpöntun?
Hringir í okkur í 460 1600 og við aðstoðum þig.

Veisluþjónusta
Sótt/sent
Panta borð

Deild

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning