Greifinn

Greifinn veitingahús

Saga

Greifinn hóf núverandi starfsemi sína þann 12. ágúst 1990.  Þá var reksturinn aðeins í helming núverandi húsnæðis sem Greifinn hafði á leigu.  Fljótlega eftir opnun náði staðurinn góðri fótfestu á veitingamarkaðnum hér í bæ.  Með vaxandi umsvifum varð þörf á stærra húsnæði.  Því var opnaður, í lok nóvember 1991, veislusalurinn Stássið.  Jafnhliða því var eldhúsið stækkað.  Sumarið 1992 bryddaði Greifinn upp á þeirri nýung að bjóða upp á grillþjónustu sem íbúar Akureyrar og nágrennis tóku opnum örmum. Einnig hefur verið starfrækt veisluþjónusta og eru þessir þættir sívaxandi í rekstri fyrirtækisins.  Árið 1995 voru fest kaup á allri jarðhæðinni að Glerárgötu 20 og við það fékk reksturinn nær tvöfalt meira pláss. Síðan hafa verið stöðugar endurbætur á húsnæði og innréttingum síðast var byggt við forstofu og afgreiðsla stækkuð veturinn 2001-2002. Sumarið 2008 var svo opnaður nýr funda- og veislusalur á efrihæð Greifans og opnaði þar með möguleikan á því að taka inn stærri hópa, veislur og fundi.

Til baka

Sótt/sent
Netpöntun
Panta borð

Deild

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning