Nú bjóðum við upp á funda- og veislusal á efri hæð Greifans. Salurinn er tilvalinn fyrir smærri og stærri
hópa því hægt er að
skipta salnum niður í tvö eða þrjú lokuð hólf. Hentar því salurinn bæði fyrir smærri
viðskiptafundi til heilu
ættarmótanna. Salurinn gerir Greifanum kleypt að taka á móti stærri hópum en áður sem og boðið upp á meira
næði. Salurinn er líka tilvalinn fyrir veislur, s.s. brúðkaup fermingar og hvert annað veislutilefni. Salurinn allur tekur allt að 140 manns.
Sniðugt er að nýta sér Veisluþjónustu Greifans í nýjum salarkynnum hans, og finna má út skemmtilega heildarpakka, salur, matur og þjónusta.




